Klassík í Bergi. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir - Sellóleikari

Í Bach og fyrir

Geirþrúður Anna leikur allar sex einleikssellósvítur Johanns Sebastians Bach í tónleikaferðalagi um landið sumarið 2021. Sunnudaginn 13. júní, kl. 16 kemur Geirþrúður fram á Klassík í Bergi í Menningarhúsi Dalvíkur.

Sellósvítur Johanns Sebastians Bach eru perlur sellóbókmenntanna og meðal dásamlegustu verka klassískra tónbókmennta. Pablo Casals lýsti þeim sem glitrandi ljóðum í hljómænu formi. Í þessum sex verkum, sem hvert ber sinn eigin brag, tóntegund, og sérstæðu, tekur Bach flytjanda sem og hlustendur í ótrúlegt ferðalag. Þetta ferðalag hefst frá fyrsta einfalda þríhljóminum sem skapar hljóðheim fyrstu svítunnar og leiðir okkur svo í gegnum innhverfu aðra svítuna, opinskáu þriðju svítuna, spámannslegu fjórðu svítuna, tregafullu og dramatísku fimmtu svítuna, og loks, hetjulegu og sigurglöðu sjöttu svítuna.

 

Tónleikar Geirþrúðar eru liður í tónleikaröðinni Klassík í Bergi 2021

Verkefnið er styrkt af Menningarjóði Dalvíkurbyggðar