KK&Gaukur tónleikaferð

KK&Gaukur tónleikaferð

KK og Gaukur verða á ferð um landið í haust. Þeir munu spila úrval af lögum KK og aðrar hugljúfar dillandi melódíur. KK er landsmönnum kunnur en Gaukur er að hasla sér völl. Hann hefur m.a. verið að spila á munnhörpu með Kaleo undanfarið.

Með KK verður hann töluvert að spila á slide gítar eða Hawaii gítar eins og það er líka kallað og raddar í bluegrass stíl. KK ætlar að vígja nýjan gítar á túrnum, forlátan Collings gítar frá Texas. Og allt verður þetta flutt gegnum 1 hljóðnema. Þetta gæti orðið ansi skemmtilegt.

Hægt er að panta miða hér.