Kaffihlaðborð í samkomuhúsinu Höfða í Svarfaðardal

Kaffihlaðborð í samkomuhúsinu Höfða í Svarfaðardal

Velunnarar Höfðans standa fyrir kaffihlaðborði í samkomuhúsinu Höfða í Svarfaðardal sunnudaginn 24. júní næstkomandi milli klukkan 13:00 og 17:00.

Hlaðborðið kostar 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri, 500 kr. fyrir 7-12 ára en frítt fyrir yngri. Ath. það er ekki posi á staðnum.

Öll innkoma af kaffihlaðborðinu rennur óskipt í endurreisnarsjóð Höfðans en miklar endurbætur hafa átt sér stað á húsinu síðustu misseri.

Hlökkum til að sjá ykkur á Höfðanum!


Velunnarar Höfðans.