Íþróttasvæði Dalvíkur, tillaga að deiliskipulagi og breytingu á aðalskipulagi

Íþróttasvæði Dalvíkur, tillaga að deiliskipulagi og breytingu á aðalskipulagi

Almennur kynningarfundur verður haldinn um tillögu að deiliskipulagi íþróttasvæðis Dalvíkur og breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, miðvikudaginn 24. janúar næstkomandi.

 

Á fundinum verða skipulagstillögur kynntar fyrir íbúum og fyrirspurnum svarað. Eftir fundinn verða tillögurnar auglýstar í samræmi við ákvæði skipulagslaga.

 

Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar á Dalvík,
miðvikudaginn 24. janúar n.k. klukkan 17:00.

 

Börkur Þór Ottósson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Dalvíkurbyggðar