Hugguleg stund á Bókasafninu - perlum saman

Börnum boðið að perla á bókasafninu. Bók með perlu-uppskriftum verður til staðar og hægt verður að strauja perlið til að taka það með heim.

Við minnum á að kaffihúsið okkar er opið alla daga í Bergi frá 10-17. Við tökum fagnandi á móti öllum þeim sem vilja nýta húsið til lærdóms, vinnu eða annarra skapandi verka. Við vinnum nú að því að bæta aðstöðuna okkar enn frekar og höfum innleitt svokallaðann -snarl-bar- á kaffihúsið. Þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Við hvetjum fólk einnig til að kynna sér umsóknaferli fyrir umsjón með kaffihússins, viðburði og fleira á heimasíðu Menningarhússins Bergs og ef einhverjar frekari spurningar vakna má alltaf hafa samband í síma 848-3248 eða í netfangið bjork@dalvikurbyggd.is.