Hádegisfyrirlestur hjá bókasafninu

Fyrsti hádegisfyrirlestur Bókasafnsins á þessu ári verður þann 22. Ferbúar klukkan 12.15.

Fyrirlesarinn þennan mánuðinn verður Trausti Þórisson, bóndi á Hofsá. Hann mun deila spennandi ferðasögu sinni þar sem hann ferðaðist með Bændaferðum til Ísrael, nánar tiltekið Tel Aviv, í þeim tilgangi að kynnast búskaparháttum þar eystra.

Leyfilegt verður að taka með sér mat frá veitingahúsinu Basalt inn í fyrirlestrar salinn og gæða sér á gómsætum veitingum á meðan á fyrirlestrinum stendur.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta.
Bókasafn Dalvíkurbyggðar