Gerum gott betra

Gerum gott betra

Hvað er Gerum gott betra?

Á skólaárinu 2018-2019 unnu Dalvíkurskóli, Naustaskóli og Þelamerkurskóli saman að verkefninu Gerum gott betraVerkefnið hlaut styrk úr Sprotasjóði og síðasti hluti þess er að miðla til annarra reynslunni og lærdómnum af verkefninu með málþingi.

Málþingið verður haldið miðvikudaginn 9. október kl. 13:00-17:00 í salnum Hömrum, í menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Meginmarkmið Gerum gott betra er að bæta þjónustu við nemendur sem þurfa mikla námsaðlögun. Verkefnið var unnið sem starfendarannsókn þar sem starfsmenn skólanna þriggja innleiddu og skoðuðu saman hvernig þeim tókst að vinna að markmiðum verkefnisins.

Gerum gott betra á rætur í Erasmus+ verkefni sem m.a. var skólaheimsókn iðjuþjálfa og aðstoðarskólastjóra og þáverandi skólastjóra Þelamerkurskóla í sérskólann De Wijnberg í Hollandi, haustið 2017. Í De Wijnberg er notast við fjölfaglega og heildstæða nálgun í námi og allri þjónustu við nemendur og fjölskyldur þeirra. Aðalfyrirlesarar málþingsins koma frá De Wijnberg skólanum.

Málþingið er í senn formleg lok á Sprotasjóðsverkefninu Gerum gott betra og uppskeruhátíð þess. Það er opið öllum áhugasömum.

Dagskrá málþings Gerum gott betra 9. október

12:40 Húsið opnar.

Kaffi, te og vatn í boði

13:00 Setning málþings
Ingileif Ástvaldsdóttir fyrrverandi skólastjóri Þelamerkurskóla

13:15 Hugmyndafræði og starf De Wijnberg skólans í Venlo í Hollandi
Annemarie Graus, Behavioural scientist MSc
Esther van Eeten, Policy advisor (quality and business operations)

14:10 Gerum gott betra. Erindi um reynslu og lærdóm af verkefninu
Valdís Guðbrandsdóttir iðjuþjálfi Dalvíkurskóla og Arna Stefánsdóttir þroskaþjálfi Dalvíkurskóla
Ingunn Heiðdís Yngvadóttir, iðjuþjálfi Naustaskóla
Sigríður Guðmundsdóttir, iðjuþjálfi Þelamerkuskóla

15:30 Kaffihlé með hressingu

15:50 Pallborð um lærdóm dagsins og tækifærin sem hann færir verkefninu til framtíðar
Dr. Hermína Gunnþórsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri
Jóhann Rúnar Pálsson, skólastjóri Þingeyjarskóla
Jónína Garðarsdóttir, sérkennari Glerárskóla
Karl Frímannsson, sviðsstjóri fræðslusviðs Akureyrarbæjar

Pallborðinu stýrir Anna Guðmundsdóttir sérkennari

16:30 Samantekt
Dr. Rúnar Sigþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri

16:45 Slit

Málþingsstjóri verður Jón Svanur Jóhannsson verkefnastjóri skólahluta Erasmus+