Foreldramorgunn með Lilju Guðnadóttur

Foreldramorgnar eru samverustundir hugsaðar sem vettvangur fyrir foreldra til að koma saman með börnin sín og njóta samvista með öðrum. Stefnt er að því að bjóða upp á fróðlegar kynningar á efni sem tengist barneignum, uppeldi og öðru sem getur verið nytsamlegt fyrir foreldra að kynna sér. Að samverustund lokinni er tilvalið að halda samtalinu áfram inni á bókasafni eða jafnvel fyrir framan á kaffihúsinu Basal+bistro.

Að þessu sinni fáum við til okkar Lilju Guðnadóttur hjúkrunarfræðing og ljósmóðir en hún ætlar að fara yfir helstu grunnatriðin í ungbarnanuddi og kenna nokkrar aðferðir sem foreldrar geta tileinkað sér fyrir sín eigin börn. Eins og alltaf hvetjum við foreldra eindregið til að koma með litlu krílin sín með sér og reynum við að hafa stundina gefandi og hlýlega.