Foreldramorgnar á bókasafninu

Foreldramorgnar á bókasafninu verða mánaðarlegur viðburður frá og með október.

Samverustundirnar eru hugsaðar sem vettvangur fyrir foreldra til að koma saman með börnin sín og njóta samvista með öðrum. Stefnt er að því að bjóða upp á fróðlegar kynningar á efni sem tengist barneignum, uppeldi og öðru sem getur verið nytsamlegt fyrir foreldra að kynna sér. Að samverustund lokinni er tilvalið að halda samtalinu áfram inni á bókasafni eða jafnvel fyrir framan á kaffihúsinu Basal+bistro

Athugið að öllum er velkomið að hafa samband með hugmyndir um efni til umfjöllunar eða koma með uppástungur um fyrirlesara. 

Vonumst til að sjá sem flesta!