Fjölskyldujóga

Ingunn Margrét býður fjölskyldum í Dalvíkurbyggð upp á jógastund í stóra salnum í Bergi. Æfingarnar eru settar saman með börnin í forgrunni og foreldrar aðstoða þau eftir þörfum. 

Unnið er með flæði, tónlist og hreyfingu. 

Allir velkomnir en við óskum eftir að fólk skrái sig í facebook viðburði (sjá síðu Menningarhússins) til þess að við áttum okkur á fjölda þátttakenda. 

Einhverjar dýnur í boði en fólk er hvatt til að mæta með eigin dýnur, í þægilegum fatnaði og með vatnsbrúsa.

 

Verkefnið er styrkt af Menningarsjóði Dalvíkurbyggðar.