Færnismiðja - Skills sharing workshop

Nú er komið að fjórðu og síðustu færnismiðjunni á þessu ári og hvað er meira viðeigandi en að skella í eitt jólaþema í desember!

Bókasafn Dalvíkur og Rökstólar hafa sett saman vinnustofu sem byggir í grunninn á fjölbreyttri jafningjafræðslu. Þetta er ekki hefðbundið námskeið þar sem einn kennir og hinir læra heldur tökumst við á við hversdagsleg viðfangsefni í sameiningu þar sem allir geta lagt eitthvað að mörkum, hvort sem þeir telja sig sérfræðinga í efninu eða ekki.

Til þess að nálgast viðfangsefnið fer Lenka, umsjónarkona Færnismiðjunnar, fjölbreyttar og margvíslegar leiðir. Tilgangurinn er að stundin sé krefjandi en á sama tíma áreynslulaus og ánægjuleg. Við þorum næstum að lofa því að allir fari heim með einhverja nýja færni eða þekkingu í pokahorninu ;) 

Þetta er þriðja færnismiðjan af 4, það er óþarfi að skrá sig, allir velkomnir og frítt inn. Þátttakendum er boðið upp á létt snarl. 
Börn eru sérstaklega boðin velkomin að taka þátt í smiðjunni með foreldrum eða forráðamönnum. 

Hlökkum til að sjá ykkur
Bókasafn Dalvíkurbyggðar og Rökstólar

 

This time there will be christmas - theme!

 

Zapraszamy na spotkania w Kuźni Talentów.
Biblioteka Miejska, przy współpracy z Rökstólar zaprasza na serię spotkań, podczas których będziemy uczyć się najróżniejszych potrzebnych codziennych czynności☺

Nie jest to typowy kurs, podczas którego ktoś jest prowadzącym, a inni uczniami, ale projekt, dzięki któremu możemy uczyć się od siebie nawzajem. Nie musisz być specjalistą w danej dziedzinie, by móc dzielić się swoimi umiejętnościami.

Tym razem to temat świąteczny. Jednym idzie to łatwiej, podczas gdy dla innych jest to jak nauka astronomii. Będziemy wzajemnie się wspierać do momentu, aż nawet najbardziej oporni opanują tę umiejętność. Wystarczy otwarty umysł, ciekawość no i przede wszystkim Twoja obecność. Kuźnia talentów to projekt, który zakłada kilka (co najmniej 4) spotkań, które rozpoczną się na przełomie roku. Nie trzeba się zapisywać, każdy jest mile widziany, a spotkania są bezpłatne. Zapraszamy szczególnie dzieci wraz ze swoimi rodzicami lub opiekunami.

do zobaczenia
Biblioteka Dalvíkurbyggð i Rökstólar