Færnismiðja - Skills sharing workshop

Langar þig að fá hugmyndir af því hvernig hægt er að gefa gömlum hlutum nýtt líf? - þá er þetta eitthvað fyrir þig!

Bókasafn Dalvíkur og Rökstólar hafa sett saman vinnustofu sem byggir í grunninn á fjölbreyttri jafningjafræðslu. Þetta er ekki hefðbundið námskeið þar sem einn kennir og hinir læra heldur tökumst við á við hversdagsleg viðfangsefni í sameiningu þar sem allir geta lagt eitthvað að mörkum, hvort sem þeir telja sig sérfræðinga í efninu eða ekki.

Í síðustu smiðju lærðu margir að hekla - aðrir gerðu eitthvað allt annað. Nú ætlum við að fá hugmyndir hvernig við getum gefið gömlum hlutum nýtt líf. Við óskum eftir kröftum allra, bæði þeirra sem eru góðir að smíða, hanna og útfæra og þeirra sem kunna minna. 

Til þess að nálgast viðfangsefnið fer Lenka, umsjónarkona Færnismiðjunnar, fjölbreyttar og margvíslegar leiðir. Tilgangurinn er að stundin sé krefjandi en á sama tíma áreynslulaus og ánægjuleg. Við þorum næstum að lofa því að allir fari heim með einhverja nýja færni eða þekkingu í pokahorninu ;) 

Þetta er þriðja færnismiðjan af 4, það er óþarfi að skrá sig, allir velkomnir og frítt inn. Þátttakendum er boðið upp á létt snarl. 
Börn eru sérstaklega boðin velkomin að taka þátt í smiðjunni með foreldrum eða forráðamönnum. 

Hlökkum til að sjá ykkur
Bókasafn Dalvíkurbyggðar og Rökstólar

-- -- --


Zapraszamy na spotkania w Kuźni Talentów.
Biblioteka Miejska, przy współpracy z Rökstólar zaprasza na serię spotkań, podczas których będziemy uczyć się najróżniejszych potrzebnych codziennych czynności☺

Nie jest to typowy kurs, podczas którego ktoś jest prowadzącym, a inni uczniami, ale projekt, dzięki któremu możemy uczyć się od siebie nawzajem. Nie musisz być specjalistą w danej dziedzinie, by móc dzielić się swoimi umiejętnościami.

Na początku będziemy uczyć się robić na drutach. Jednym idzie to łatwiej, podczas gdy dla innych jest to jak nauka astronomii. Będziemy wzajemnie się wspierać do momentu, aż nawet najbardziej oporni opanują tę umiejętność. Wystarczy otwarty umysł, ciekawość no i przede wszystkim Twoja obecność.
Kuźnia talentów to projekt, który zakłada kilka (co najmniej 4) spotkań, które rozpoczną się na przełomie roku. Nie trzeba się zapisywać, każdy jest mile widziany, a spotkania są bezpłatne. Zapraszamy szczególnie dzieci wraz ze swoimi rodzicami lub opiekunami.

do zobaczenia
Biblioteka Dalvíkurbyggð i Rökstólar