Ein á dag - ljósmyndasýning

Opnun í Bergi fimmtudaginn 28. september milli kl 17.00 og 19.00

Hvernig lítur þinn afmælisdagur út? - Instagram ævintýri 2017

Júlíus Júlíusson hefur tekið eina mynd á dag frá 1. Janúar 2017 og sett á Instagram reikning sinn @hulio66. Þetta skemmtilega  verkefni varð til í göngutúr með allri fjölskyldunni að kvöldi fyrsta dags ársins 2017 þegar Júlíus tók mynd af krossfiski í fjörunni á Dalvík. Til varð hugmyndin “Ein á dag!” út árið.

Nú í október sýnir Júlíus fyrri hluta ársins eða 181 mynd í Menningarhúsinu Bergi.

Myndirnar á sýningunni verða til sölu og fást í fallegum römmum hvítum eða svörtum 23 x 23 og myndirnar sjálfar eru 13 x 13. Hver mynd hefur sína dagsetningu og nafn og er merkt þannig, því er gaman að gefa þær til þeirra sem eiga afmæli viðkomandi dag. Allar myndirnar eru teknar á Samsung 7 edge síma. 

Sýningin stendur til og með 31. október.