Bókabíó í Bergi

Bókabíó í stóra salnum í Bergi - 500 kr miðinn og lítill popp poki innifalinn í miðaverði. Að auki verður hægt að versla frekari veitingar á Basalt. Allir velkomnir en 3. bekkur og yngri skulu vera í fylgd með fullorðnum. Öll börn eru á ábyrgð foreldra sinna og forráðamanna á meðan að á myndinni stendur.

Kosning um hvaða mynd á að sýna fer fram á bókasafninu, endilega takið þátt!