- Þjónusta
- Fjölskyldan
- Menntun
- Íþróttir og tómstundarstarf
- Endurvinnsla
- Umhverfi
- Skipulags- og byggingarmál
- Dýrahald
- Veitur og hafnir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Laugardaginn 25. apríl síðastliðinn fór fram ungmennaþingið "Heima er best" sem ungmennaráð Dalvíkurbyggðar stýrði og skipulagði. Þingið fór fram í félagsmiðstöðinni Týr í Víkurröst.
Skipulag þingsins var með þeim hætti að aðalmenn ungmennaráðs skiptu sér í þrjá hópa og höfðu allir mismunandi málefni til umræðu í sínum hóp.
Umræðuefnin voru:
Alls mættu rúmlega 20 ungmenni sem var skipt í þrjá hópa og fékk hver og einn hópur 15-20 mín til að ræða hvert umræðuefni áður en skipt var yfir í næsta hóp. Öll ungmenni fengu því að ræða um öll málefnin og koma skoðunum sínum á framfæri.
Eftir að umræðum lauk bauð ungmennaráðið upp á pizzuveislu auk þes sem heimsmeistaramótið í borðtennis var haldið en þar varð Björgvin Máni Friðriksson hlutskarpastur.
Í lokin fóru fulltrúar ungmennaráðs yfir það sem fór fram á þeirra borðum. Ungmennaráðið mun svo fara yfir niðurstöður þingsins á næsta fundi sínum og vinna áfram með þær.