- Þjónusta
- Fjölskyldan
- Menntun
- Íþróttir og tómstundarstarf
- Endurvinnsla
- Umhverfi
- Skipulags- og byggingarmál
- Dýrahald
- Veitur og hafnir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Eftirfarandi frétt birtist á vef SSNE:
Í gær, 11.febrúar, opnaði fyrir umsóknir í nýjan sjóð Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Stofnun sjóðsins, sem fengið hefur nafnið Lóa, er liður ráðuneytisins í að styðja við nýsköpun á landsbyggðinni vegna fyrirhugaðrar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Heildarfjárhæð sem úthlutað verður 2021 er 100 milljónir króna og er hámarksstyrkur hvers verkefnis 20 milljónir króna. Úthlutað er til 1 árs í senn og skulu verkefnin miða við það.
Hlutverk styrkjanna:
Umsóknarfrestur er til 9. mars 2021 og skal umsóknum skilað rafrænt á eyðublaðavef stjórnarráðsins.
Hér er hægt að nálgast reglur sjóðsins. Hægt er að bóka ráðgjöf hjá atvinnuráðgjöfum SSNE sem geta aðstoðað við umsóknarskrif.