Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf frá og með 4. ágúst 2026 á leikskólann Krílakot, en hann er 6 deilda heilsueflandi leikskóli sem vinnur eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla stærðfræði.
Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor og má finna nánari kynningu á starfi Krílakots hér.
Helstu verkefni:
- Vinnur að uppeldi og menntun barna og verkefnum sem því tengjast.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs.
- Tekur þátt í þróunarverkefnum leikskólans.
- Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans.
- Samstarf við aðrar stofnanir og sérfræðinga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla á leikskólastigi og umönnun barna æskileg.
- Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð.
Umsóknafrestur er til og með 16. júní 2026
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi. Frekari upplýsingar um launakjör veitir launafulltrui@dalvikurbyggd.is
Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsækjendum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Frekari upplýsingar veitir: Elvý G. Hreinsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið elvy@dalvikurbyggd.is