Ný sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur haldið sinn fyrsta fund

Ný sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur haldið sinn fyrsta fund

Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar fór fram föstudaginn 5. júní sl. og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. 

Eftirtaldir skipa sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2026-2030 talið frá vinstri; Börkur Þór Ottósson (A), Magni Þór Óskarsson, 2. varaforseti (K), Monika Margrét Stefánsdóttir, forseti sveitarstjórnar (B), Helgi Einarsson (K), Benedikt Snær Magnússon, 1. varaforseti (D), Katrín Sif Ingvarsdóttir (K), Bessi Ragúels Víðisson (D) og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri.

Á fundinum var kosið í byggðaráð, fagráð og fastanefndir , aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 202/2026.

Málefna- og samstarfssamningur B-lista Framsóknar og óháðra í Dalvíkurbyggð og K-lista Dalvíkurbyggðar um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 2026-2030 var lagður fram til kynningar á fundinum.

Fundargerð sveitarstjórnar er aðgengileg hér.

Upptaka af fundinum er aðgengileg hér á YouTube rás sveitarfélagsins.