Íþróttamiðstöð: sundlaugarvörður (kk)

Íþróttamiðstöð: sundlaugarvörður (kk)

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir karlmanni í 100% starf sundlaugavarðar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um framtíðarráðningu er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sundlaugagæsla
  • Klefavarsla
  • Afgreiðsla og samskipti við viðskiptavini, nemendur og starfsfólk grunnskóla
  • Þrif mannvirkis

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
  • Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð
  • Lágmarksaldur er 20 ára.

 

Auk ofangreindra hæfniskrafna er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.

Umsóknarfrestur er til og með 15.6.2026

Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is). Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar (jonsi@dalvikurbyggd.is).

Sundlaug Dalvíkurbyggðar var tekin í notkun haustið 1994 og er hún afar vinsæl meðal ferðamanna. Þar má finna 12,5m x 25m sundlaug, heita potta, barna- og hvíldarlaug, vatnsrennibraut, vatnssvepp og eimbað. Við sundlaugina er íþróttahús sem var tekið í notkun árið 2010.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.