Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir áfram sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir áfram sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar

Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl. var gengið frá ráðningu í starf sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar fyrir kjörtímabilið 2026-2030.

Sveitarstjórn samþykkti samhljóða með 7 atkvæðum að ráða Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur áfram í starf sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar.

Jafnframt var ráðningarsamningur við sveitarstjóra samþykktur samhljóða á fundinum.

Ákvæði um ráðningu og hlutverk sveitarstjóra kemur fram í 49. gr. og 50. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar.