Viðlagatryggingar Íslands heimsækja Dalvíkurbyggð

Viðlagatryggingar Íslands heimsækja Dalvíkurbyggð

Síðastliðinn miðvikudag komu aðilar frá Viðlagatryggingum Íslands (VTÍ) í heimsókn til Dalvíkurbyggðar. Heimsóknin er liður í átaki stofnunarinnar til að kynna betur hlutverk hennar sem og að bæta þekkingu á skráningu þeirra opinberra mannvirkja í eigu sveitarfélagsins sem eru skráð hjá VTÍ. Mikilvægt er að skráð verðmæti þessara eigna sé uppfært reglulega til að tryggja að þær sé að fullu vátryggðar ef vátryggingaatburður á sér stað. Fundarmenn góðar og markvissar umræður um þessi mál ásamt því að ræða um mikilvægi samvinnu á milli sveitarfélagsins og VTÍ til að efla markvissa enduruppbyggingu ef tjón verður.

Einnig var rætt um mikilvægi þess að íbúar sé sjálfir meðvitaðir um sína vátryggingavernd en fram kom að ef innbú er vátryggt almennri lausafjártryggingu hjá vátryggingafélagi rennur hluti iðgjaldsins til VTÍ og tryggir þannig vátryggingavernd innbúsins komi til tjóns af völdum jarðskjálfta, eldgosa, vatns-, aur- eða snjóflóða skv. skilgreiningum laga um VTÍ (55/1992). Ef slík vátrygging er ekki til staðar greiðast engar bætur vegna innbús ef til tjóns kemur. Allar fasteignir eru hins vegar skylduvátryggðar gegn náttúruhamförum og eru iðgjöldin innheimt samhliða brunatryggingum fasteigna hjá almennu vátryggingafélögunum.