Viðgerð í Sundlaug Dalvíkur

Fyrirhugað er að Sundlaug Dalvíkur verði lokuð frá Sjómannadeginum 3. júní og trúlega í 2 vikur. Ýmsar viðgerðir fara fram á þessum tíma og eru þær þess eðlis að erfitt er að spá um endanlegan tíma sem viðgerðirnar taka. Reynt verður að sinna þörfum þeirra sem vilja komast í ræktina en fyrirkomulag vegna þess verður auglýst síðar, áður en að lokun kemur. Frekari upplýsingar gefur Bjarni Gunnarsson í síma 896-3133.