Veðurspá marsmánaðar fyrir Veðurklúbbinn á Dalbæ

Veðurspá marsmánaðar fyrir Veðurklúbbinn á Dalbæ

Þriðjudaginn 6. mars  komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar í því skyni að huga að veðurhorfum í marsmánuði. 

Að venju var farið yfir sannleiksgildi spár fyrir liðinn mánuð og útkoman að vonum góð.

Nýtt tungl kviknar 17. Þessa mánaðar í suðri kl. 13:12 og er það laugardagstungl, sem þykir gott tungl.  Gert er ráð fyrir að veðurfar í mars verði áþekkt og veður hefur verið undanfarið, þ.e. umhleypingsamt veður með breytilegum vindátturm og fremur kalt. Reikna má með nokkurri snjókomu, en hláku inn á milli.  Búist er við léttu páskahreti, sem stendur þó frekar stutt. 

 

Veðurvísa mánaðarins

Febrúar á fannir

Þá læðist geislinn lágt.

Í mars þá blæs oft biturt,

en birtir smátt og smátt

 

Með góðri góðri kveðju og ósk um gleðilega páska

Veðurklúbburinn á Dalbæ