Veðurspá maímánaðar frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Veðurspá maímánaðar frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Þriðjudaginn 2.  maí 2017  komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar.  Farið var yfir spágildi veðurspár fyrir aprílmánuð og voru fundarmenn sammála um að þar hefði vel tekist til. Tunglið sem kviknaði 26. apríl kl. 12:16 í SA og er ríkjandi fyrir veðurfar í maí mánuði og bendir allt til þess að veður í maí verði gott. Svolítið breytilegt en verri veðurkaflar standa mjög stutt. Reikna má með smá rumbu alveg í lok mánaðrins.

Ríkjandi vindáttir munu verða norðan og norðvestan og hitastig viðunandi. Til er gömul  veðurvísbending. “Það sem viðrar á tveggjapostula messu sem var 1. maí héldu þeir gömlu, að stæði til 4. í Hvítasunnu”

Veðurvísa  apríl og maí
Í apríl sumrar aftur
þá ómar söngur nýr.
Í maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.

Með sumarkveðju,
Veðurklúbburinn á Dalbæ