Veðurspá desembermánaðar frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Veðurspá desembermánaðar frá Veðurklúbbnum á Dalbæ

Þriðjudaginn 5.  desember 2017  komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar til að huga að veðurhorfum í jólamánuðinum.  Fundarmenn voru 6 talsins, sem er óvenju fámennt, en nokkrir veðurspámenn voru uppteknir við jólaundirbúning og ýmiss viðvik sem gera þarf á aðventu. Fundarmenn voru nokkuð sáttir við hvernig síðasta spá gekk eftir en þó reyndist heldur meiri snjókoma en reiknað var með.

Nýtt tungl kviknar í austri þann 18. des. samkvæmt áræðanlegum heimildum og gerist það kl. 06:31 samkvæmt sömu áræðanlegu heimildum. Þetta er jólatungl, sem að þessu sinni ber upp á mánudag.

Desember verður frekar risjóttur framan af mánuði og kaldari en undanfarið. Eftir næstu tunglkomu má reikna með vaxandi snjókomu. Áttir verða breytilegar og kaldari tíð en fyrir ári síðan.  Spár þessar eru byggðar á ýmsum vísbendingum, sem ekki verða í smáatriðum gefnar upp, en nefna má mikinn músagang. Nær öruggt er talið að það verði hvít jól en ekki mikil ófærð.

 

 Veðurvísa  desember

Þó desemaber sé dimmur,
þá dýrðleg á hann jól.
Með honum endar árið
og aftur hækkar sól

 

Með jóla- og áramótakveðju,
Veðurklúbburinn á Dalbæ