Vala Stefánsdóttir gerir það gott með landsliðinu

Vala Stefánsdóttir frá Dalvíkurbyggð tekur þátt í heimsmeistaramóti kvennlandsliða í íshokkí og þær eru að gera það gott. 
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí tryggði sér í gær sæti í 3. deild heimsmeistaramótsins eftir öruggan sigur á Nýja-Sjálandi, 5:1, í uppgjöri efstu liða 4. deildar í Rúmeníu.
Ísland hefur unnið alla fjóra leiki sína og skorað 27 mörk gegn 5 þegar einni umferð er ólokið. Nýja-Sjáland getur náð Íslandi að stigum en ef liðin verða jöfn, ráða innbyrðis úrslit viðkomandi liða.
Flosrún Vaka Jóhannesdóttir var sem fyrr í aðalhlutverki og skoraði þrjú markanna en Sigrún Agatha Árnadóttir og Sólveig Smáradóttir gerðu tvö fyrstu mörkin.
Alls taka 33 þjóðir þátt í heimsmeistaramótinu og leika í fimm deildum, úrvalsdeild og fjórum öðrum. Ísland er með þessu komið upp úr neðstu deild mótsins.
Frétt fengin af mbl.is