Útivistardagur Dalvíkurskóla

Mynd: Guðný S. Ólafsdóttir
Mynd: Guðný S. Ólafsdóttir

Á hverju hausti er útivistardagur í Dalvíkurskóla en þá ganga nemendur skólans fyrirfram ákveðnar gönguleiðir, miskrefjandi eftir aldri nemenda. 

Markmið göngudagsins falla vel að grunnþáttum menntunar í heilbrigði og velferð en þar er lögð áhersla á að leiðbeina nemendum um að temja sér heilbrigða lífshætti og ábyrga umgengni við líf og umhverfi. Markvisst hreyfiuppeldi leggur grunn að líkamlegri, andlegri og félagslegri færni nemenda.

Markmið Göngudags Dalvíkurskóla eru: 

Að efla heilbrigði, félagsfærni og náttúrulæsi;
•auka þátt útiveru, hreyfingar og hollustu í skólastarfinu
•auka félagsfærni, kynnast samnemendum og starfsmönnum skólans í öðrum aðstæðum en hefðbundnu skólastarfi
•læra um sitt nærumhverfi, örnefni, landslag og sögur sem tengjast svæðinu
•læra um gróður og jurtir

Auk þess sem nemendur kynnast því hver æskilegur búnaður er í gönguferðum, s.s. hvernig klæðnaður hentar í dagsgöngu, að klæða sig samkvæmt veðri og læra að ganga í hóp með fararstjóra og fylgja reglum sem gilda um slíkar ferðir.

Í gær, 1. september var göngudagurinn.
1. bekkur gekk upp fyrir bæjargirðingu á Upsadal ásamt elsta árganginum af Krílakoti.
2. bekkur upp að bæjargirðingu á Böggvisstaðadal
3. og 4. bekkur fram Kofa á Böggvisstaðadal. 
Nemendur í 5. og 6. bekk gátu valið um að fara að Skeiðsvatni eða upp að Nykurtjörn.
Nemendur í 7.-10. bekk völdu að fara á Bæjarfjallið, yfir Reykjaheiði eða ganga í Friðlandinu fram að Húsabakka. 

Auk þess sem hópur nemenda í 7.-10. bekk er í útivistarvali, þau gengu upp að skálanum á Heljardalsheiði, gistu þar í nótt og ganga heim í dag. 

Dagurinn tókst afar vel og voru margir þreyttir en ánægðir með sig eftir daginn. Hlýtt var í veðri, fallegt haustveður, logn og þurrt að mestu.

Myndir af 3.-4. bekk eru frá Hörpu Rut Heimisdóttur
Myndir af unglingum í Friðlandinu eru frá Elmari Eiríkssyni og hinar myndirnar eru teknar af höfundi greinar.

Guðný S. Ólafsdóttir
Kennari í Dalvíkurskóla

Farið í fótabað í Fótalaug Bakkabræðra
5. - 6. bekkur á leið upp að Nykurtjörn
3. - 4. bekkur á heimleið frá Kofa
Sumir á unglingastigi lögðu leið sína um Friðland Svarfdæla