Ungmennasamband Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum í Landsmótssjóð UMSE 2009

Seinni úthlutun ársins fer fram fyrir 1. nóvember.

Sjóðurinn hefur frá stofnun stutt vel við margvísleg verkefni. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að öflugara starfi hjá UMSE og aðildarfélögum þess. Sjóðurinn styrkir ýmis verkefni í innra starfi UMSE – svo sem:
-Útbreiðslu- og kynningarstarf í því skyni að gera UMSE sýnilegra og vekja athygli á fjölþættu starfi sambandsins.-Fræðslustarf – m.a. námskeiðshald og fyrirlestra fyrir þjálfara, leiðbeinendur, starfsmenn og/eða dómara, félagsmenn og iðkendur innan UMSE.
-Önnur verkefni sem sjóðsstjórn metur að séu til þess fallin að efla innra starf UMSE.

Vakin er athygli á því að nú þarf að sækja um styrki á sérstöku umsóknareyðublaði.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september n.k. Umsóknir berist skirfstofu UMSE Búgarði, Óseyri 2, 603 Akureyri eða í tölvupósti á umse@umse.is .

Umsóknareyðublað, nánar um sjóðinn og úthlutunarreglur hans er að finna á vefsíðu UMSE.
http://www.umse.is/reglugerdhir/landsmotssjodhur-umse-2009