Umsóknir um mataraðstoð fyrir jólin 2016

Umsóknir um mataraðstoð fyrir jólin 2016

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar er í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri og Rauða krossinn við Eyjafjörð varðandi umsóknir um mataraðstoð. Umsóknir er hægt að nálgast á skrifstofu félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar.

Skilafrestur á umsóknum fyrir mataraðstoð er fimmtudaginn 8.desember 2016, eftir þann tíma er búið að loka fyrir umsóknir um mataraðstoð.

Mikilvægt er að umsóknunum fylgi staðgreiðsluyfirlit sem nálgast má inn á www.skattur.is , með því að fara vinstra megin á síðunni í Staðgreiðsluskrá RSK og velja árið. Þetta blað er líka hægt að nálgast hjá Ríkisskattstjóra. Starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar geta einnig aðstoðað einstaklinga við að nálgast blaðið með því að viðkomandi komi með veflykilinn sinn af síðu Skattsins.

Ef umsóknunum fylgir ekki staðgreiðsluyfirlit telst umsóknin ógild.

Úthlutun mataraðstoðar mun eiga sér stað þriðjudaginn 13.desember 2016.

Frekari upplýsingar veita starfsmenn félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar í síma 460 4900.