Tilkynning til íbúa á Árskógssandi, Hauganesi og dreifbýli

Tilkynning til íbúa á Árskógssandi, Hauganesi og dreifbýli

Þann 22. mars síðastliðinn var tekið sýni úr neysluvatni fyrir íbúa á Árskógssandi, Hauganesi og á Árskógströnd. Þann 24. mars kl. 11:15  var niðurstaðan ljós og sýndi að neysluvatnið er mengað.

Í samráði við heilbrigðiseftirlit er því beint til íbúa að sjóða vatn til beinnar neyslu.

Markvisst er verið að vinna að úrbótum, skolað út stofnæðar og vatnstank og fylgst með vatnsgæðum í samráði við heilbrigðiseftirlit. Einn þáttur í þessu að nota klór til hreinsunar og geta íbúar fundi væga klórlykt á meðan á þessum aðgerðum stendur.

Gefin verður út ný tilkynning þegar ástandið lagast.

Dreifibréf með þessum upplýsingum verður borið í hús á svæðinu. 

Vatnsveita Dalvíkurbyggðar