Þorri Jón 4 ára

Þorri Jón 4 ára

Þorri Jón varð 4 ára þann 21. nóvember síðastliðinn. Hann var veikur á afmælisdaginn en hélt upp á daginn með okkur í leikskólanum í dag. Hann bjó sér til glæsilega kórónu, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni og flaggaði íslenska fánanum. Við sungum svo afmælissönginn fyrir hann. Okkur langar að óska Þorra Jóni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn hans.