Sveinbjörn Steingrímsson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar hefur sagt upp starfi

Á síðasta fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 23. mars, var tekið fyrir bréf frá Sveinbirni Steingrímsyni, sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 19. mars 2006, þar sem Sveinbjörn segir upp starfi sínu hjá Dalvíkurbyggð.  Fram kemur að Sveinbjörn hefur starfað hjá Dalvíkurbyggð og fyrirrennurum þess í tæp 30 ár, þakkar hann ánægjuleg samskipti og samstarf við starfsfólk, bæjarfulltrúa og bæjarbúa þennan tíma.

Bæjarráð þakkar Sveinbirni langt og giftusamlegt starf.