Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Óskað er eftir umsóknum í starf yfirflokkstjóra og í 6 störf flokkstjóra.

Yfirflokkstjóri.
  • Vinnur með Garðyrkjustjóra og aðstoðar hann við rekstur á Vinnuskólanum. 
  • Hæfni í að stjórna og skipuleggja og góð mannleg samskipti æskileg.

Þarf helst að vera 20 ára eða eldri.

Flokkstjórar.

  • Vinna með 7-10 krakka í hóp, á aldrinum 14-16 ára.
  • Viðkomandi þarf að hafa þroska til að stjórna og vinna með unglingum.

Umsóknarfrestur er til 17. mars.

Nánari upplýsingar fást hjá Garðyrkjustjóra í síma 898 3490.

Umsóknareyðublöð má nálgast á Bæjarskrifstofunni og á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is, undir umhverfis- og tæknisviði.

Þeim skal skila inn á Bæjarskrifstofu, Ráðhúsinu.

Jón Arnar Sverrisson.

Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar og umsjónarmaður Vinnuskólans.