Sumarstörf hjá Umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar

Sumarstörf hjá Umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar

Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laus til umsóknar störf sumarstarfsmanna á eigna- og framkvæmdadeild. Starfsmenn starfa undir deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar.

Umsóknarfrestur er til 5. maí 2019

Starfstími er frá 1. júní til 31. ágúst 2019.

Hæfniskröfur

  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Samskipta- og skipulagshæfni
  • Góður kostur er að hafa bílpróf og dráttarvélapróf (minna vinnuvélanámskeið).

 

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð,  http://min.dalvikurbyggd.is/login.aspx 

Umsóknum um starfið skal fylgja ferilsskrá.

Allar nánari upplýsingar veitir Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar.