Sumarstarfsmenn í upplýsingamiðstöð og á tjaldsvæði


Dalvíkurbyggð auglýsir eftir tveimur sumarstarfsmönnum í upplýsingamiðstöð og á tjaldsvæði Dalvíkurbyggðar. Upplýsingamiðstöðin er staðsett í Berg menningarhúsi en tjaldsvæðið neðan við Íþróttamiðstöðina á Dalvík.

Um er að ræða tvö störf sem eru 82,5% starfshlutfall hvort fyrir sig. Ráðningatímabilið er áætlað frá 23. maí – 9. september. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er virka daga og aðra hverja helgi og skiptist hvort starf fyrir sig á milli upplýsingamiðstöðvar og tjaldsvæðis.


Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2016. Athugið að um framlengdan frest er að ræða.


Helstu verkefni:
• Upplýsingagjöf til ferðamanna
• Samskipti og samvinna við ferðaþjónustuaðila
• Upplýsingaöflun t.d. bæklingar
• Skráning gesta
• Ræsting á tjaldsvæði
• Innheimta á tjaldsvæði
• Uppgjör á tjaldsvæði
• Almennt eftirlit á tjaldsvæði


Hæfnikröfur:
• Mikilvægt er að tala góða íslensku og ensku. Fleiri tungumál eru kostur.
• Góð tölvuþekking og hæfni í að nýta sér upplýsingatækni
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Rík þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking á ferðaþjónustu og góð staðbundin þekking æskileg
• Reynsla af sambærilegum störfum kostur

Umsóknareyðublöð er að finna á Mín Dalvíkurbyggð. og eru umsækjendur vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið þar.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi í síma 460 4900 og á netfanginu margretv@dalvikurbyggd.is