Styrkumsóknir í Menningasjóð Sparisjóðs Svarfdæla

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla. Samkvæmt 2. grein skipulagskrár sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til hvers konar menningarmála á starfsvæði Sparisjóðs Svardæla, en það er Dalvíkurbyggð og Hrísey.

Umsóknarfrestur er til 10. mars 2010. Umsóknum skal skila til stjórnar sjóðsins sem veitir nánari upplýsingar. Stjórnina skipa:

• Friðrik Friðriksson, Laugagerði, 621 Dalvík (ffmj@simnet.is ), formaður

• Lovísa M Sigurgeirsdóttir, Karlsbaut 9, 620 Dalvíkl (einiar@simnet.is )

• Kristrún Sigurðardóttir, Ásholti1, Hauganesi (kristrun@dalvik.is )

Umsóknareyðublöð fást hjá ofanrituðum, á afgreiðslustöðum Sparisjóðsins og á heimasíðu hans. Slóðin er www.spsv.is

Styrkþegar ársins 2009 eru minntir að skilafrestur greinagerða rennur út 5. mars n.k.


Stjórn Menningarsjóðs Sparisjóðs Svarfdæla