Starfsmann vantar til starfa í skammtímavistuninni Skógarhólum

Starfsmann vantar til starfa í skammtímavistuninni Skógarhólum

Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi starfsmann til starfa í  skammtímavistuninni Skógarhólum frá ca. miðjum september 2017. Um er að ræða 40 % vaktavinnu, helgar, kvöld og næturvaktir.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2017.

 Starfssvið:

  • Umönnun og þjálfun fyrir einstaklingana sem nýta sér þjónustuna hverju sinni.

 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi á starfi með börnum og ungmennum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Hreint sakavottorð.


Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á  netfangið hildurbj@dalvikurbyggd.is . Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi. Móttaka umsókna verður staðfest með tölvupósti. Valið verður úr hópi umsækjenda á grundvelli viðtala og/eða framlagðra gagna. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á  körlum til starfa á verksviðinu. Laun skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um starfið gefur Hildur Birna Jónsdóttir  í síma 8616602 eða á hildurbj@dalvikurbyggd.is