Starfsmaður óskast til starfa í skammtímavistun í Dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullann og drífandi starfsmann til starfa í skammtímavistuninni Skógarhólum. Um er að ræða 50% vaktavinnu; um það bil önnur hver helgi, kvöld, nætur og dagvaktir. Starfsmaðurinn þarf að geta hafið störf 1. september.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní.


Starfssvið:
• Umönnun og þjálfun fyrir þá einstaklinga sem nýta sér þjónustuna hverju sinni.


Hæfniskröfur:
• Reynsla og áhugi á starfi með börnum og ungmennum.
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Hreint sakavottorð.

Umsjón með starfinu hefur Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar, (eyrun@dalvikurbyggd.is  ) og yfirþroskaþjálfi skammtímavistunar, Hildur Birna Jónsdóttir, (hildurbj@dalvikurbyggd.is ).

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á fyrrgreind netföng. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi. Móttaka umsókna verður staðfest með tölvupósti. Valið verður úr hópi umsækjenda á grundvelli viðtala og/eða framlagðra gagna. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á körlum til starfa á verksviðinu. Laun skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.


Upplýngar um starfið gefur Hildur Birna Jónsdóttir í síma 861 6602 eða á hildurbj@dalvikurbyggd.is