Starf aðalbókara hjá Dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð auglýsti nýverið eftir aðalbókara, rann umsóknarfrestur út 4. júli sl. og alls bárust 11 umsóknir. Umsækjendur voru; Aðalsteinn E. Sigurðsson, Erla S. Jónsdóttir, Erna B. Einarsdóttir, Freyr Antonsson, Gísli Maack, Guðrún M. Þrastardóttir, Jón S. Sæmundsson, Lilja M. Hreiðarsdóttir, Rúna K. Sigurðardóttir, Samuel L. Sandgreen og Sigurlaug R. Sævarsdóttir. 

Erna B. Einarsdóttir hefur verið ráðin í starf aðalbókara, en hún hefur starfað hjá sveitarfélaginu Hornafirði sl. 14 ár, lengst af sem aðalbókari.