Spila blak til styrktar kaupum á brjóstaómskoðunartæki

Októbermót blakfélagsins Rima er nú haldið í 6. skiptið helgina 16.-17. október. Mótið hefur stækkað ár frá ári og er því spilað bæði á föstudagskvöldi og allan laugardaginn. Í fyrra tóku 32 lið þátt, bæði karla og kvennalið, af öllu Norðurlandi og eiga mótshaldarar von á því að mótið verði af svipaðri stærðargráðu í ár.

Sú nýbreytni verður í ár að mótið er tileinkað stuðningi við Bleika daginn, sem er árveknis - og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameini hjá konum. Í ár er barist gegn ristilkrabbameini kvenna. Rimalið kvenna, og vonandi karla líka, munu að því tilefni spila í bleikum fatnaði alla helgina en ekki sínum hefðbundnu keppnisbúningum. Rimar hafa síðan hvatt önnur lið til að mæta með eða í einhverju bleiku til stuðnings málefninu. Að auki verða 500 kr. af hverju keppnisgjaldi teknar frá sem styrkur til Sjúkrahússins á Akureyri til kaupa á nýju brjóstaómskoðunartæki, en sjúkrahúsið safnar fyrir slíku tæki þessa dagana.

Íbúar, sem aðrir, eru hvattir til að mæta í Íþróttamiðstöðina í dag og á morgun, fylgjast með skemmtilegu blakmóti og hvetja sitt lið.