Sparisjóður Svarfdæla kostar byggingu menningarhúss á Dalvík

Sparisjóður Svarfdæla kostar byggingu menningarhúss á Dalvík
Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri.

Sparisjóður Svarfdæla á Dalvíku boðaði til blaðamannafundar í dag klukkan 11:00  í Ráðhúsinu á Dalvík þar sem kynnt var afkoma sparisjóðsins á árinu 2006. Í ljósi góðrar afkomu Sparisjóðs Svarfdæla á árinu 2006 hefur stjórn hans samþykkt að leggja til við aðalfund að sparisjóðurinn kosti byggingu menningarhúss á Dalvík samkvæmt fyrirliggjandi teikningum sem kynntar hafa verið bæjarráði Dalvíkurbyggðar. Húsið mun meðal annars rúma fjölnotasal, bókasafn, kaffihús og upplýsingamiðstöð og mun Dalvíkurbyggð, fyrir hönd íbúa sveitarfélagsins, taka við rekstri menningarhússins að byggingu lokinni. Áformað er að húsið komist í gagnið fyrir mitt ár 2008. Áætlaður byggingarkostnaður, og þar með andvirði þessarar gjafar til íbúa í Dalvíkurbyggð, er um 200 milljónir króna.

Áætlað er að húsið verði um 700 fermetrar að stærð og samþykkti umhverfisráð Dalvíkurbyggðar á fundi í gær, með fyrirvara um breytingu deiliskipulags, umsókn Sparisjóðs Svarfæla um byggingarlóð sunnan Ráðhússins á Dalvík. Fanney Hauksdóttir, arkitekt, er hönnuður hússins og styðst hún m.a. við smárann, merki sparisjóðanna, í formhönnun þess. Fanney sýndi frumdrög að menningarhúsinu og er meðfylgjandi mynd yfirlits mynd af húsinu.

Í húsinu verður fjölnotasalur sem mun nýtast til ýmissa samkoma, ráðstefna, sýninga, smærri tónleika og annarra listviðburða ýmis konar. Þá verða útlánadeild bókasafns Dalvíkurbyggðar og afgreiðsla héraðsskjalasafns flutt úr kjallara Ráðhússins í nýja húsið, upplýsingamiðstöð verður í húsinu, kaffihús og fleira en meginhugsunin er sú að gæða húsið lífi og starfi árið um kring. Með því mun það fá verðugan sess í miðbæjarmyndinni á Dalvík.    

Góð afkoma grunnurinn að byggingu menningarhússins

Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarfdæla, segir góða afkomu á undanförnum árum og sér í lagi á árinu 2006, gera sjóðnum kleift að ráðast í þetta mikla og metnaðarfulla verkefni.

"Á undanförnum árum hefur afkoma Sparisjóðs Svarfdæla verið mjög góð. Eigið fé sparisjóðsins hefur í samræmi við það vaxið mjög mikið og nemur nú tæpum 2 milljörðum króna. Þessa góðu afkomu sparisjóðsins má að mestu rekja til mikillar hækkunar á hlutabréfum í eigu sjóðsins, einkun eignarhluta í Kaupþingi hf. og Exista hf. Í tillögu stjórnarinnar um byggingu menningarhússins felst sú afstaða hennar að rétt sé að láta það samfélag sem sparisjóðurinn starfar í njóta hlutdeildar í góðri afkomu ársins með áþreifanlegum og táknrænum hætti. Það er í þeim anda sem sparisjóðurinn hefur starfað um langan tíma og mun vonandi gera um langa framtíð," segir Friðrik.

Eins og áður segir mun aðalfundur sparisjóðsins fá tillögu stjórnar til afgreiðslu þann 16. mars næstkomandi. Að afgreiðslu aðalfundar lokinni mun byggingarnefnd sparisjóðsins og Dalvíkurbyggðar væntanlega taka til starfa og hafa yfirumsjón með framkvæmdunum.

Þess má geta að á íbúaþingi sem haldið var í Dalvíkubyggð í Október á síðasta ári kom fram sterkur vilji íbúa að hér sé staðsett menningarhús og töldu þátttakendur íbúaþingsins að eitt af brýnustu verkefnunum framundan væru bygging menningarhúss.

Áformað er að hefja framkvæmdir við menningarhús á Dalvíki með vorinu og að hægt verði að taka húsið í notkun fyrrihluta árs 2008.