Slit á Hafnasamlagi Eyjafjarðar

Eigendur Hafnasamlags Eyjafjarðar bs. hafa ákveðið að leggja samlagið niður. Þeir sem þurfa að reka erindi gagnvart þeim höfnum sem voru í samlaginu er bent á, frá og með 1. júní, að snúa sér til:

  • Hafnarsjóðs Fjallabyggðar, kt. 580607-0880, Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði, vegna Ólafsfjarðarhafnar,
  • Hafnasamlags Norðurlands, kt. 650371-2919, Fiskitanga 600 Akureyri, vegna Hríseyjarhafnar og
  • Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar, kt. 620598-2089, Ráðhúsinu 620 Dalvík, vegna hafnanna á Dalvík, á Árskógssandi og á Hauganesi.

Samkvæmt ákvörðun eigenda mun Dalvíkurbyggð sjá um slit hafnasamlagsins. Þangað má því snúa sér ef um einhver vafamál er að ræða. Nánari upplýsingar gefur bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð, Svanfríður Jónasdóttir, s. 460 4902