Skólabörn frá Ittoqqortoormiit í heimsókn

Skólabörn frá Ittoqqortoormiit í heimsókn

Nú í vikunni fengum við heimsókn skólabarna og kennarar frá Ittoqqortoormiit sem er vinabær Dalvíkurbyggðar. Ittoqqortoormiit er nyrsti bærinn á austurströnd Grænlands, einnig nefndur Scoresbysund. Börnin eru hingað komin til að læra sund en Grænlensk-íslenska vinafélagið KALAK bíður árlega börnum frá Grænlandi til Íslands til að læra sund og fer sú kennsla fram í Reykjavík að þessu sinni. 

Einu sinni í viku er flogið frá Scoresbysundi til Akureyrar og nýttu þau því tækifærið og komu í heimsókn í Dalvíkurbyggð áður en þau héldu áfram suður í sundkennsluna. Á meðan þau dvöldu í Dalvíkurbyggð fóru þau í heimsókn á bóndabæi þar sem þau sáu kýr, kálfa, hesta, heimalninga og fleiri dýr sem þau eru ekki vön að sjá í sínum heimahögum. Börnin voru alsæl með heimsóknina og héldu glöð í bragði á vit frekari ævintýra í Reykjavík.