Skíðaferð til Ísafjarðar heppnaðist vel

Hópur skíðakrakka frá Dalvíkurbyggð sótti Ísafjörð heim um helgina og keppti þar á Bikarmóti í stórsvigi 13 - 14 ára. Bestum árangri okkar krakka náðu þeir Hjörleifur Einarsson, sem varð í öðru sæti í sínum aldursflokki, og Unnar Sveinbjarnarson sem varð í 6. sæti í sínum flokki. Á Ísafirði var nægur snjór en því miður urðu mótshaldarar að hætta við keppni í svigi á sunnudag vegna veðurs. Meðfylgjandi mynd tók Bjarni Gunnarsson sem var með í för um helgina.

Allar frekari upplýsingar um mót á vegum Skíðafélags Dalvíkur má finna á heimasíðu félagsins www.skidalvik.is.