Skautarnir mættir í byggð

Skautarnir mættir í byggð

Í dag klukkan 15:00 færði Foreldrafélag Dalvíkurskóla og styrktaraðilar Íþróttamiðstöðinni formlega 100 skauta í stærðum 25-48, 14 hokkíkylfur, 4 pökka og 40 hjálma. 

Í morgun fóru Friðrik Arnarson, skólastjóri og Freyr Antonsson, formaður foreldrafélagsins, til að sýna börnum í Dalvíkurskóla búnaðinn og segja þeim frá umgengnisreglum varðandi skautana og skautasvellið. 

Hægt verður að fá lánaða skauta hjá starfsfólki í íþróttamiðstöðinni. 
Foreldrafélaginu og styrktaraðilum eru færðar sérstakar þakkir fyrir þetta einstaka framtak. Nú eru allir íbúar og gestir hvattir til að skella sér á skauta og njóta.