Risastelpukvöld

Risastelpukvöld

 

Á morgun föstudaginn 2.desember munum við blása til veislu í Tý. Þá verður öllu karlkyns hent út og efnt til allsherjar stelpukvölds. Ekkert karlkyns verður leyft í húsinu nema Maggi sem telst ansi kvenlegur. Við byrjum gleðina klukkan 17:00 með leikjum og sprelli. Klukkan 18:00 munum við snæða saman og að því loknu koma tvær frábærar konur og fræða stelpurnar um ýmis málefni. Þetta verður stanslaust stuð og bjóðum við öllum stelpum í 7. - 10.bekk til gleðinnar. Það kostar ekkert inn og hvetjum við sem flestar til að mæta!