Ráðning deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar

Ráðning deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar

Helga Íris Ingólfsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar. 

Hún hefur gegnt starfi skipulags- og tæknifulltrúa á framkvæmdasviði frá því í apríl á þessu ári.

Helga Íris er með BS próf í umhverfisskipulagi/landslagsarkítektúr frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Þá lýkur hún MSc í skipulagsfræði frá sama skóla á næstunni. Hún hlaut einnig alþjóðlega D-vottun IPMA í verkefnastjórnun frá Símenntun HA og er að sækja sér viðbótardiplómu hjá Háskóla Íslands í opinberri stjórnsýslu.

Helga Íris er innfæddur Svarfdælingur og býr á Dalvík ásamt eiginmanni og fjórum börunum. Hún hefur brennandi áhuga á umhverfis- og skipulagsmálum og mikinn metnað fyrir því að vinna að framförum á framkvæmdasviði Dalvíkurbyggðar. Hún hefur setið í umhverfisráði og er innviðum sveitarfélagsins að góðu kunn. Einnig vann hún um tíma á tæknideild Dalvíkurbyggðar.

Helga Íris er boðin velkomin i nýtt starf hjá Dalvíkurbyggð.