Óskað eftir tilboðum í umsjón og rekstur á Rimum

Óskað eftir tilboðum í umsjón og rekstur á Rimum

Sveitarfélagið Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í umsjón og rekstur á félagsheimilinu Rimum ásamt aðliggjandi tjaldsvæði.  Um er að ræða rekstur á núverandi aðstöðu gegn leigugreiðslu með leigusamningi til eins árs, með möguleiga á framlengingu til allt að 6 ára. Húsnæðið og tjaldsvæði hentar vel fyrir ýmiskonar starfsemi svo sem menningarstarf, félagsstarf, ráðstefnur, veislur, ættarmót og fl.

Möguleiki er að Sundskáli Svarfdæla leigist með ef áhugi er fyrir því.

Skilyrði er að á vegum rekstraraðila sé umsjónaraðili sem hefur fasta búsetu í sveitarfélaginu.  

Áhugasamir aðilar skulu senda fyrirspurnir á tilboðstíma er varða vettvangsskoðun og annan aðbúnað fyrir lok 27. nóvember 2020 til Eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar á netfangið steinthor@dalvikurbyggd.is merkt „Rimar 2020“

Tilboðsfrestur er til og með 2. desember 2020
Með tilboði skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um áætlaða starfsemi og notkun fasteignarinnar og tjaldsvæðis.

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.