Örsögusamkeppni

Örsögusamkeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar

Menningarsamtök Norðlendinga, MENOR, efnir til samkeppni um örsögur í vetur í samstarfi við Tímarit Máls og menningar.  Örsögur eru nefndar örstuttar smásögur, oft með ljóðrænu ívafi.  Þátttaka er heimil fólki á öllum aldri og alls staðar á landinu.  Skilafrestur er til 1. maí næstkomandi.  Þriggja manna dómnefnd velur þá þrjár bestu sögurnar sem hljóta vegleg bókaverðlaun.

Sögurnar á að senda undir dulnefni til:  MENOR / Pósthólf 384 / 602 Akureyri merktar "Örsögukeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar 2005".  Í lokuðu umslagi með sögunni skal fylgja nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer.  Umslagið skal merkt með dulnefni höfundar.  Aðeins verða opnuð umslög verðlaunahöfunda.  Nánari upplýsingar má nálgast á www.menor.is

MENOR stóð í fyrsta skipti fyrir keppni á sviði ritaðs máls veturinn 1986-87 þegar félagið og RÚVAK efndu til samkeppni um ljóð og smásögur.  Valin voru fimm ljóð og jafnmargar smásögur til flutnings í svæðisútvarpinu.  Árið 1989 hófst samstarf milli MENOR og dagblaðsins Dags á Akureyri um ljóða- og smásagnasamkeppni, og hefur slík keppni verið árviss viðburður síðan.  Úrval þessara ljóða og sagna var gefið út á bók á 20 ára afmæli MENOR árið 2002.  MENOR hefur líka verið í samstarfi við DV og tímaritið Heima er best, og samkeppni um ritun einþáttunga fór fram árin 1998-2000 í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.  Voru verðlaunaþættirnir settir á svið á Akureyri árið 2003.