Opið fyrir umsóknir í menningar- og viðurkenningarsjóð

Opið fyrir umsóknir í menningar- og viðurkenningarsjóð

Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningar- og viðurkenningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2018. Umsóknarfrestur er til og með 7. mars og má nálgast umsóknir á þar til gerðu eyðublaði, inn á íbúagáttinni, undir flipanum umsóknir. 

Við úthlutun er tekið mið af menningarstefnu sveitarfélagsins.


Styrkþegar ársins 2017 eru minntir á að skila til sveitarfélagsins stuttri greinargerð um nýtingu styrksins, að öðrum kosti hafa þeir fyrirgert rétti sínum til nýrrar úthlutunar.

Verkefnin sem sótt er um styrki fyrir árið 2018 skal ljúka eigi síðar en 31. desember 2018.

 

Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dalvíkurbyggðar